Veldu einn eða fleiri möguleika. Cross search is available



Lavazza vinstri hlið mynd
Forsíða :: KAFFI/TE : Vörur : Lavazza kaffitegundir

Lavazza kaffitegundir

Lavazza hefur uppá fjölmargar kaffitegundir að bjóða. Allar blöndurnar frá Lavazza má nota í hvaða kaffivél sem er, hvort sem um gömlu klassísku mokkakönnuna er að ræða, sjálfvirka vél, espressovél, pressukönnu osfrv.

Malað kaffi í dós:

  • Lavazza Qualità Rossa - 250 gr. dós
    Bragðmikil og kröftug blanda af Arabica og Robusta baunum. Mest selda tegundin á Ítalíu. Í einum kassa eru 12x250 gr. dósir.

  • Lavazza Qualità Oro - 250 gr. dós
    Sæt blanda af Arabica baunum. Einstakt bragðjafnvægi, góð fylling og eftirbragð. Í einum kassa eru 12x250 gr. dósir.
     

 Malað kaffi:


  • Lavazza Qualità Rossa - 250 gr. & 500 gr.
    Bragðmikil og kröftug blanda af Arabica og Robusta baunum. Mest selda tegundin á Ítalíu. Í einum kassa eru 20x250 gr. eða 10x500 gr.


  • Lavazza Qualità Oro - 250 gr. & 500 gr.
    Sæt blanda af Arabica baunum. Einstakt bragðjafnvægi, góð fylling og eftirbragð. Í einum kassa eru 20x250 gr. eða 10x500 gr.

  • Lavazza Club - 250 gr.
    "Kaffið í smókingnum". Inniheldur einstakar 100% Arabica baunir fyrir þá sem vilja fágaða blöndu af ilmandi sætleika. Í einum kassa eru 20x250 gr.


  • Lavazza Dek koffínlaust espresso -  250 g.
    Koffínlausa versjónin af Lavazza. Ríkulegt og ljúffengt bragð líkt og um hina klassísku "koffín"-gerð væri að ræða. Upplagt að fá sér bolla af Lavazza Dek á kvöldin og ef kaffilöngunin gerir enn vart við sig eftir að koffínþörf dagsins hefur verið fullnægt. Í einum kassa eru 20x250 gr.

  • Lavazza Espresso - 250 gr.
    Inniheldur sérvaldar, úrvals Arabica baunir. Einstaklega mjúkt og gott kaffi með kröftugan ilm. Í einum kassa eru 20x250 gr.
     
  • Lavazza Caffé Crema - 500 gr.
    Grófmalað, kröftug kaffiblanda.  Í einum kassa eru 10x500 gr.

Kaffibaunir:

  • Lavazza Espresso baunir - 250 gr.
    Í einum kassa eru 20x250 gr.
     
  • Lavazza Qualità Oro baunir - 250 gr.
    Í einum kassa eru 20x250 gr.
     
  • Lavazza Qualità Rossa baunir - 1 kg.
    Í einum kassa eru 6x1 kg.

Espresso baunir:

  • Lavazza Super Crema - 1 kg.
    Blanda af Arabica og Robusta baunum. Einstaklega rík "crema" myndast í bollanum. Ljúffeng blanda! Í einum kassa eru 6x1 kg.


  • Lavazza Pienaroma - 1 kg.
    100% Arabica baunir. Ilmandi, mjúkt og fágað, fyrsta flokks kaffiblanda fyrir bestu veitingahús og kröfuharða.  Í einum kassa eru 6x1 kg.

  • Lavazza Top Class - 1 kg.
    Handtíndar, sérvaldar Arabica blanda, með bestu fáanlegu Robusta baunum til að tryggja kraft og fyllingu.  Lavazza Top Class er blönduð fyrir bestu kaffihús Ítalíu, gefur þykka "crema", er mjúkt og öflugt. Í einum kassa eru 6x1 kg.

Lavazza Blue kaffi- og tehylki:

                BLUE Espresso Dolce (100% arabica) 100 stk.
                BLUE Espresso Intenso 100 stk.
                BLUE Ozo (byggkaffi) 50 stk.
                BLUE Mjólk f. kakó 50 stk.
                BLUE Classico svart te 50 stk.
                BLUE Limone sítrónute 50 stk.
                BLUE Verde grænt te 50 stk. 
                BLUE Camilla kamillute 50 stk.
                BLUE Frutti ávaxtate 50 stk.

Kaffivélar:

  • Lavazza Blue Silver kaffivélin er upplögð fyrir heimilið og minni vinnustaði. Kaffivélin er með klassískri sveif eins á á kaffihúsavél. Eingöngu er hægt að nota Lavazza Blue kaffi- og tehylkin í vélina. Þrýstistútur til að flóa mjólk fyrir cappuccino er á hlið vélarinnar. 

Lavazzakaffi fæst í öllum betri stórmörkuðum, Melabúðinni, Vínberinu, hjá Jóa Fel, Mosfellsbakaríi ofl.
Til að fá nánari upplýsingar um kaffivélarnar, hafið samband í síma 5409000.

www.lavazza.it

Almanaks Lavazza er ávallt beðið með eftirvæntingu í ljósmyndaheiminum og vekur verðskuldaða athygli um heim allan. Þú getur séð myndirnar og lesið meira um almanak Lavazza með því að smella HÉR.

Til baka
MYNDSKEIÐ
VÖRUMERKIN OKKAR
Rana Sacla logo. m ramma Fiorucci logo m. ramma De Cecco Cirio JEnsens m. ramma Drogheria & Alimentari Lavazza logo m. ramma Celestial Seasonings Icelandic Glacial San Pellegrino Lindt logo m. ramma Cloetta logo m. ramma Ritter Sprot logo m. ramma Storck logo m. ramma Delba Rajah

©2007 • Karlsson ehf. • Powered by: Hugurax • Design by Paolo Ramazzotti