Kaffiplantan vex í hitabeltislöndum. Einungis tvö afbrigði hennar eru notuð til ræktunar kaffis, en það eru Arabica plantan og Robusta plantan. Ávöxtur kaffiplöntunar er ber á stærð við ólífu, sem fær á sig rauðan lit þegar hann er fullþroskaður. Hver ávöxtur inniheldur tvær kaffibaunir.
Arabica plantan vex í 600-2000 metra hæð yfir sjávarmál. Hún vex í löndum Mið- og Suður Ameríku, en einnig er hún ræktuð í Afríku og Asíu. Arabica kaffibaunin inniheldur u.þ.b. 1,4% koffein. Arabica baunin öðlast yfirleitt dálítið sætt bragð við brennslu, hún gefur bragðmilt kaffi með dálitlum sýrukeim. Frá Lavazza eru til blöndur eins og Qualita Oro, Espresso og Club, en þær innihalda allar 100% Arabica kaffibaunir.
Robusta plantan vex í allt að 600 metra hæð yfir sjávarmáli. Hún vex aðallega í Afríku og Asíu, en að litlu leyti í Suður Ameríku, t.a.m. í Norður Brasilíu. Hrá lítur baunin öðruvísi út en Arabica, Robusta er kringlóttari og hefur á sér grárri lit, er jafnvel dálítið brúnleit. Koffein innihald Robusta baunarinnar er u.þ.b. 2,7%. Eftir brennslu innihalda þær bragðeiginleika sem eru töluvert frábrugðnir Arabica bauninni. Robusta baunin gefur mikinn ilm, nokkurn súkkulaðikeim og mjög mikið eftirbragð. Lavazza notar Robusta baunir í blöndur líkt og Qualita Rossa og Crema e Gusto til að ná fram meiri styrkleika í bragði.
Í heiminum eru aðallega notaðar tvær uppskeruaðferðir, kaffibaunir eru ýmist handtíndar eða tíndar í vélum. Hvor þessara aðferða kalla á ákveðna vinnsluaðferð við að fjarlægja ávöxtinn utan af kaffibaununum. Sé um handtínslu að ræða fer hún einungis fram þegar nær allir ávextir eru fullþroskaðir. Einungis þroskaðar kaffibaunir eru tíndar og hinar skildar eftir. Í hinu tilfellinu er vélbúnaði beitt við tínsluna og eru þá allir ávextirnir tíndir af plöntunni, hvort sem þeir eru allir þroskaðir eður ei.
Þvegnar kaffibaunir (wet processing)
Þessi aðferð er notuð þegar einungis er um þroskaða ávexti að ræða og þá yfirleitt ef þeir hafa verið handtíndir. Þeir eru þá lagðir í vatn og látnir liggja þar þar til holdið fer utan af baununum. Þá eru kaffibaunirnar þurrkaðar, ýmist í sólarljósi eða vélum. Þessi aðferð er mikils metin á kaffimörkuðum. Þvegnar kaffibaunir eru yfirleitt seldar hærra verði, því hér er tryggt að einungis hefur verið um fullþroskaða ávexti að ræða. Lögun baunanna er einnig reglulegri og sjáanleg gæði meiri. Bragðeinkenni kaffis sem uppskorið er á þennan hátt er milt, sætt og ilmandi. Arabica baunir frá hálendum Mið- Ameríku er yfirleitt uppskorið með þessari aðferð, en einnig handtíndar Robusta baunir frá Java í Indonesíu og Indlandi. Þær baunir eru iðulega með dýrasta hráefni sem fæst á kaffimörkuðum heims.
Þurrkaðar kaffibaunir (dry processing)
Þessi aðferð er mun hagkvæmari en sú fyrri. Hér eru ávextirnir lagðir í sólina og látnir liggja þar í 2-3 vikur, þar til holdið hreinsast af af sjálfu sér eða er fjarlægt í vélum. Kaffibaunir sem unnar eru á þennan hátt ganga undir nafninu "Natural coffees" eða náttúrulegar kaffibaunir. Mest allt kaffi sem framleitt er í Brasilíu og Columbiu er uppskorið með þessari aðferð.