Veldu einn eða fleiri möguleika. Cross search is available



Lavazza vinstri hlið mynd
Forsíða :: KAFFI/TE : Kaffifróðleikur : Kaffi og smökkun

Kaffi og smökkun

Á meðal þeirra sem hvað best þekkja til kaffis, er smökkun þess veigamikið atriði við mat á góðum bolla. En á Ítalíu nota menn fleiri skilningarvit en munninn einan til að meta heildarútkomuna. Kaffi er metið með augum, nefi og munni, þ.e. eftir útliti bollans, ilmi kaffisins og að endingu, bragði.

Góður espresso á að hafa mjög ákveðin einkenni hvað varðar útlit, magn og bragð. Froðan (la crema) á að vera þykk og hnetubrún að lit. Drykkurinn skal borinn fram í espresso bolla, 4cl., best er að hann sé þröngur neðst en víkki síðan þegar ofar dregur.

Espresso er yfirleitt drukkinn í þremur sopum. Sá fyrsti er sá mikilvægasti, þá er drykkurinn látinn velkjast til í munni, til að meta bragðeiginleika þess sem á eftir kemur. ½ tsk. af sykri á að vera nóg til þess að deyfa náttúrulegan biturleika í góðu kaffi. Annars fer sykurinn að yfirgnæfa önnur bragðeinkenni kaffisins sem verið er að leita eftir.

Fagleg smökkun fer oft þannig fram að smakkarinn tekur drykkinn í teskeið, sýpur hratt á honum þannig að kaffið úðast um munninn. Kaffismökkun er ekki ólík vínsmökkun, en þrír helstu bragðeiginleikar sem smakkarinn leitar eftir eru:

  • Sýrubragð (acidity), það finnst á hlið tungunnar
  • Sætleiki (sweetness), finnst á tungubroddi
  • Beiskja (bitterness), finnst á tungubotni

Til baka
MYNDSKEIÐ
VÖRUMERKIN OKKAR
Rana Sacla logo. m ramma Fiorucci logo m. ramma De Cecco Cirio JEnsens m. ramma Drogheria & Alimentari Lavazza logo m. ramma Celestial Seasonings Icelandic Glacial San Pellegrino Lindt logo m. ramma Cloetta logo m. ramma Ritter Sprot logo m. ramma Storck logo m. ramma Delba Rajah

©2007 • Karlsson ehf. • Powered by: Hugurax • Design by Paolo Ramazzotti