Veldu einn eða fleiri möguleika. Cross search is available



Lavazza vinstri hlið mynd
Forsíða :: ÍTALÍA : Vörur : Fiorucci

Fiorucci

Parmaskinka er undirstöðu afurð í matarmenningu Ítala. Parmaskinku er fyrst getið í heimildum frá árinu 100 f. Krist, þar sem þess er getið að veðurfar og loftvindar í og í kringum Parma gefi einstök bragðgæði við gerð hráskinku. Skilyrði á þessu svæði þóttu og þykja enn einstök til framleiðslu þessarar afurðar sem í dag er ein eftirsóttasta sælkeraafurð heims.

Vinnsluaðferðir við Parmaskinku hafa ekki breyst mikið í grundvallaratriðum frá því á tímum Rómverja, þó vissulega hafi þær þróast í takt við kröfur nútímans. Kjötið er lagt í salt og síðan hengt upp og loftþurrkað í u.þ.b. 12 mánuði. Parmaskinkan er ilmandi og sæt að bragðgæðum, auk þess sem hefðbundnar framleiðsluaðferðir í Parma eru einstakar hvað varðar matvælaöryggi umfram það sem þekkist með aðra hráskinku.

Árið 1996 öðluðust Ítalir lögverndun Evrópusambandsins á vöruheitinu Parmaskinka (ít.: Prosciutto di Parma, e: Parma ham), og var varan ein sú fyrsta á sviði matvæla til að hljóta D.O.P. vottun (Denomination of Protected Origin) Evrópusambandsins. 

Ítalski framleiðandinn Fiorucci S.p.A., er stærsti framleiðandi og útflytjandi Parmaskinku á Ítalíu.  Fiorucci býður upp á heil stykki og niðursneidda skinku í bréfi.  

  • Fiorucci Prosc. Parma 80 gr. bréf
  • Fiorucci Prosc. Parma 5 kg. biti
  • Fiorucci Prosc. Parma 7 kg. læri
  • Fiorucci Salame Milano 1.5 kg kryddpylsa.
  • Fiorucci Speck 2.3 kg biti
  • Fiorucci Speck 80 gr. bréf
  • Fiorucci San Daniele hráskinka 80 gr. bréf
  • fioucci San Daniele 7 kg. læri
  • Fiorucci Salame Milano 80 gr. bréf
  • Fiorucci hráskinka 80 gr. bréf
  • Fiorucci Salame Napoli 80 gr. bréf
  • Fiorucci antipasto 120 g bakkar
  • Fiorucci Mortadella 5 kg. áleggspylsa 

Hráskinkan frá Fiorucci fæst meðal annars í Melabúðinni, Nóatúni, Hagkaupum, Samkaupum, Hjá Jóa Fel og Mosfellsbakaríi.

Til baka
MYNDSKEIÐ
VÖRUMERKIN OKKAR
Rana Sacla logo. m ramma Fiorucci logo m. ramma De Cecco Cirio JEnsens m. ramma Drogheria & Alimentari Lavazza logo m. ramma Celestial Seasonings Icelandic Glacial San Pellegrino Lindt logo m. ramma Cloetta logo m. ramma Ritter Sprot logo m. ramma Storck logo m. ramma Delba Rajah

©2007 • Karlsson ehf. • Powered by: Hugurax • Design by Paolo Ramazzotti