Spænsk matar- og vínmenning er spennandi viðfangsefni fyrir sælkera. Vín frá Spáni eru Íslendingum vel kunnug og flestir kannast einnig við Tapas réttina, þessa skemmtilegu smárétti sem er hægt að bera fram nánast hvenær sem er. Spænsk matarmenning býður þó upp á mikið meira en bara Tapas og óhætt að halda því fram að matseld Spánverja sé tvímælalaust ein sú mest spennandi í Evrópu í dag.
