Veldu einn eða fleiri möguleika. Cross search is available



Lavazza vinstri hlið mynd
Forsíða :: ÍTALÍA : Vörur : Rana

Rana

Rana er það merki sem Ítalir velja, vilji þeir kaupa sér ferskt pasta. Giovanni Rana hóf framleiðslu á fersku tortellini ungur að árum, fyrst um sinn til sérverslana og bakaría víðs vegar um Ítalíu. Í dag er Rana leiðandi vörumerki á þessu sviði, jafnt innan og utan Ítalíu. Fyrirtækið sérhæfir sig alfarið í framleiðslu á ferskasta pasta sem völ er á og velur einungis hágæða hráefni í fyllingar á borð við parmaskinku, ítalska osta, grænmeti og svo mætti lengi telja.

Á Íslandi fást nú fjölmargar tegundir af fersku pasta frá Rana, fyllt og ófyllt:

  • Ferskt lasagne
  • Ferskt tagliatelle
  • Ferskt spaghetti
  • Gnocchi
  • Gnocchi með skinku og mozzarella
  • Gnocchi með gorgonzola
  • Gnocchi með tómötum og mozzarella
  • Cappelletti með hráskinku
  • Tortellini með osti
  • Tortell með kóngasveppum (porcini)
  • Tortelloni með ricotta og spínati
  • Ravioli með tómötum og mozzarella
  • Ravioli með kóngasveppum

 Einnig fást ferskar pastasósur frá Rana: 

  • Fersk bolognese-sósa
  • Fersk osta-sósa
  • Fersk pestó-sósa

Rana sósurnar krefjast engrar matreiðslu, heldur er þeim hellt í skál og nýsoðnu, fersku pasta blandað saman við.

Vörurnar frá Rana fást meðal annars í Melabúðinni, Nóatúni, Fjarðarkaupum, 10-11, 11-11, Krónunni, Hagkaupum og Samkaupum.

 

Til baka
MYNDSKEIÐ
VÖRUMERKIN OKKAR
Rana Sacla logo. m ramma Fiorucci logo m. ramma De Cecco Cirio JEnsens m. ramma Drogheria & Alimentari Lavazza logo m. ramma Celestial Seasonings Icelandic Glacial San Pellegrino Lindt logo m. ramma Cloetta logo m. ramma Ritter Sprot logo m. ramma Storck logo m. ramma Delba Rajah

©2007 • Karlsson ehf. • Powered by: Hugurax • Design by Paolo Ramazzotti