Veldu einn eða fleiri möguleika. Cross search is available



Lavazza vinstri hlið mynd
Forsíða :: ÍTALÍA : Vörur : Carapelli

Carapelli

Undirstaða ítalskrar matargerðar er góð ólífuolía. Hollusta ólífuolíu er vel kunn, en hún inniheldur fitusýrur á borð við Omega 3, sem nauðsynlegar eru fyrir líkamann. Bragðeiginleikar góðrar ólífuolíu eru ótvíræðir og notkunarmöguleikarnir eru endalausir. Vönduð ólífuolía er oft nægjanleg sem krydd á kjöt- og fiskrétti. Hún er auk þess gjarnan notuð út á fyllt, ferskt pasta áður en rétturinn er borinn fram. Út á salat og grænmeti er hún hreint ómissandi.

Carapelli er í fararbroddi í framleiðslu ólífuolíu á Ítalíu. Fyrirtækið er meira en aldargamalt og hefur alla tíð sérhæft sig í framleiðslu á ólífuolíu í hæsta gæðaflokki.

Carapelli Oro Verde, eða "græna gullið" eins og hún heitir á íslensku, er 100% ítölsk ólífuolía. Carapelli er einn af fáum framleiðendum á Ítalíu sem staðfestir að allar ólífurnar séu frá Ítalíu, pressaðar á Ítalíu, auk þess sem afurðin er sett á flöskur í heimalandinu. Carapelli Oro Verde er vandlega samansett af hágæða ólífum frá nokkrum héruðum innan Ítalíu, hún hefur mikið bragðjafnvægi og fyllingu og hentar mjög vel sem grunnhráefni í flesta matargerð sem krefst vandaðs hráefnis.

Carapelli Mild & Light er tilvalin fyrir þá sem eru að byrja að prófa sig áfram í ólífuolíunotkun. Olían er sérstaklega mild og er því upplagður staðgengill annarra grænmetisolía.

Carapelli Extra Virgin ólífuolía er búin til út sérvöldum jómfrúrólífuolíum úr ítölsku héruðunum við Miðjarðarhafið. Rjómakennd áferð hennar og ríkulegt bragðið gera hana ákjósanlega í eldamennsku og til að bragðbæta salöt.

Carapelli Il numerato Toscano jómfrúrólífuolían er sérvalin úr ólífupressunarstöðvum "frantoio" í Toscanahéraði. Bragð hennar er mjög þroskað með léttpipruðum keim og vægu eftirbragði af möndlum og þistilhjörtum. Hentar mjög vel hrá í matargerð (það er ekki elduð) "pinzimonio", en einnig í aðra eldamennsku.  

Carapelli Il numerato Ligure jómfrúrólífuolía  er sérvalin úr ólífupressunarstöðvum á Lígúríustrandlengjunni, Blómarívíerunni nánar tiltekið. Um er að ræða afar bragðþétta olíu með áberandi sætum keim, snert af pipar og léttum ávaxtailmi. Mest notuð hrá í eldamennsku, en einnig í aðra eldamennsku, sérstaklega hentug í ýmsa fiskrétti.

Carapelli Il numerato Umbria jómfrúrólífuolía er sérvalin úr ólífupressunarstöðvum Í Úmbríuhéraði, nánar tiltiekið í Sottozona Assisi - Spoleto. Sterkur ávaxtakeimur og ögn beiskur undirtónn einkenna olíunnar og ilmur hennar er áleitinn en þó í góðu jafnvægi. Líkt og hinar numerat-olíurnar hentar olían sérstaklega vel hrá, en einnig marga eldaða rétti, t.d. tilvalin í súpur.

Carapelli OLYS olían er sú fyrsta sem framleidd er úr ýmsum korntegundum og ávöxtum, nánar tiltekið úr korn- og maísfræjum, hnetum, hrísgrjónum og rifsberjum. OLYS er fyrsta matarolían sem sameinar næringareiginleika korns (korn, maís og hrísgrjón) og ávaxta (hnetur rifsber). Næringarfrumefnum OLYS-olíunni er ekki bætt í olíuna, heldur er þau að finna á náttúrulegan hátt í hráefnunum sem olían er búin til úr. Olían er sérdeilis ilmandi og bragljúf en svo er hún einnig auðug af E-vítamíni, nauðsynlegum fitusýrum, omega 3-fitusýrum, gamma oryzanol-efnasamböndum. Olían er góður kostur fyrir þá sem vilja ná niður kólesterólmagni í blóði og þá sem almennt hugsa um heilsuna og eru tilbúnir til að prófa eitthvað nýtt og hollt án þess að fórna bragðgæðum þess vegna. OLYS henta bæði hrá og hituð í matargerð og nánast í alla rétti, því milt bragð hennar yfirgnæfir aldrei hráefnið, heldur dregur bestu eiginleika þess fram.

Carapelli Balsamico er ein af olíunum í kryddolíulínu "aromatizzati" Carapelli. Balsamikediki er bætt út í jómfrúrólíuolíu og látið trekkja. Útkoman er olía með keim af balsamikediki sem hentar frábærlega sem bragðgjafi út á salöt og aðra rétti heita sem kalda.

 

  • Carapelli Oro Verde 500 ml.
  • Carapelli Gently Filtered Extra Virgin 500 ml.
  • Carapelli Mild & Light 500 ml.
  • Carapelli Extra Virgin 3 ltr.
  • Carapelli Pure 3 ltr.
  • Carapelli Il Numerato Toscana 500 ml
  • Carapelli Il numerato Ligure 500 ml
  • Carapelli Il numerato Umbria 500 ml
  • Carapelli ólífuolía 3 ltr.
  • Carapelli OLYS 1 ltr.
  • Carapelli Balsamico (balsamik edik) 500 ml.

Til baka
MYNDSKEIÐ
VÖRUMERKIN OKKAR
Rana Sacla logo. m ramma Fiorucci logo m. ramma De Cecco Cirio JEnsens m. ramma Drogheria & Alimentari Lavazza logo m. ramma Celestial Seasonings Icelandic Glacial San Pellegrino Lindt logo m. ramma Cloetta logo m. ramma Ritter Sprot logo m. ramma Storck logo m. ramma Delba Rajah

©2007 • Karlsson ehf. • Powered by: Hugurax • Design by Paolo Ramazzotti