Veldu einn eða fleiri möguleika. Cross search is available



Lavazza vinstri hlið mynd
Forsíða :: LÍFSLIST

LÍFSLIST

Súkkulaðidraumar

       Súkkulaðimarens 

Súkkulaði og marens, súkkulaðimús, súkkulaðikaka, heitt súkkulaði, súkkulaðifondue, súkkulaðibitakökur, brownies, konfekt, súkkulaðisósa, súkkulaðiostakaka, súkkulaðiís, súkkulaðilíkjör, súkkulaðikaramellur, súkkulaðisoufflé.... eru nokkrar af þeim unaðslegu bragðlaukalystisemdum sem búa má til úr súkkulaði. Fram að jólum verður sannkölluð súkkulaðiveisla og í hverri viku bætast við spennandi uppskriftir, greinar, fróðleikur, myndir og fleira tengt hinu ástsæla súkkulaði. Sendið endilega inn ykkar súkkulaði drauma, speki eða uppskriftir og valdar hugmyndir verða birtar hér í Súkkulaðihorninu.

Þegar maður býr til konfekt, skiptir náttúrlega mestu að nota eðalsúkkulaði í framleiðsluna. Konfektgerð er skemmtilegt tilefni til að stefna saman fjölskyldu og vinum. Óþarfi að hafa flutina flókna. Það sem mestu skiptir er gæðasúkkulaði og góða skapið.


                                             Súkkulaðihjörtu

                    

Dýfið uppáhaldssmjörkökunum að 1/3 upp úr dökku góðu súkkulaði og látið harðna. Nammi namm!

                                Hnetu- marsípandúllur

                    

Þessi konfektmolar eru algjörar dúllur, auk þess að vera gersamlega ómótstæðilegar. Samsetningin súkkulaði-marsípan-hnetur klikkar seint. Mjög einfaldar og fallegar á að líta. Tilvaldar í nammiskálina yfir hátíðarnar. Smart að setja hvern mola í lítil bréfkonfektform og nota til gjafa eða setja einn mla á undirskál með kaffibollanum.
Rúllið marsipani í litlar kúlur, klemmið valhnetum sitthvoru megin utan um og þrýstið létt á til að festist saman. Bræðið gott dökkt súkkulaði (t.d. Lindt) yfir vatnsbaði og dýfið dúllunum til hálfs upp úr súkkulaðinu, þannig að séu súkkulaðihúðaðar öðru megin en sjáist í hnetuna og marsípanið hinum megin. Gleðileg jól!

                             Súkkulaðisamlokur

                    

Bræðið 250 g af dökku  eðal súkkulaði og smyrjið á tvo bkunarpappírsrenninga  í  tvö u.þ.b ferkantað þunn lag á. Stráið söxuðum pistasíuhentum strax yfir annan súkkulaðiferninginn. Bræðið 80-100 g af mjólkursúkkulaði (eða hvítu, fer e. smekk) og blandið örlitlu smjöri saman við og dreitil af uppáhaldslíkjörnum (má sleppa), t.d. appelsínulíkjör. Þegar dökka súkkulaðilagið er orðið hart, smyrjið þá kældu kreminu jafnt yfir (hentulausu plötuna) og losið hina dökku súkkulaðiplötuna (með hentunum ofan á) varlega af pappírnum og klemmið ofan á þrýstið vel niður. Skerið niður í grófa ferninga.

Þessar blæjubersbombur standa fyllilega fyrir sínu sem eftirréttur (3-4 á mann, fer eftir stærð berja vitanlega), eða sem elegant konfekt með hverjum kaffibolla eftir mat eða í kaffiboðinu. SKOÐA uppskrift.

                      



Súkkulaði, hnetur og þurrkaðir eða sultaðir ávextir eiga sérstaklega vel saman.

Þessar hnetufylltu súkkulaðihúðu fíkjur eru ómótstæðilegar.

                      


Notið eðal þurrkaðar fíkjur, helst ekki sem eru klesstar saman í pakka, heldur frekar lausar og búttaðar í pakkningunum. Komið hnetu með hýði á fyrir í miðju fíkjunnar og og þrýstið öðrum helming hennar niður þannig að botninn fletjist ögn út. Bræðið gott dökkt súkkulaði yfir vatnsbaði og dýfið flatari hluta fíkjanna ofan í súkkulaðið (ca. 1/3 hluta fíkjunnar) og leggið á leggið á smjörpappír og látið harðna.


             

Eftirfarandi súkkulaðimedalíur eru mjög algengt konfekt um jól í Evrópu. Þær eru mjög einfaldar í undirbúningi og alveg sérlega mikið augnayndi, sem og bragðlaukaertandi. Súkkulaði er einfaldlega brætt yfir vatnsbaði, dökkt eða ljóst eftir smekk , nú eða hvítt.  Síðan eru formaðar þunnar medalíur úr heitu súkkulaðinu á bökunarpappír á bökunarplötu eða á borði. Síðan er hnetum, rúsínum, súkkati eða heimasultuðum appelsínuberki eða smásneiðum raðað ofan á heitt súkkulaðið og skrautið síðan "festist" náttúrlega við súkkulaðið þegar það harðnar og þá er komið þetta líka glæsilega "smákökulaga" konfekt sem slær í gegn hvar sem það fer. Sniðugt að búa til borðskraut, t.d. krans úr fagurskreyttum medalíunum og láta standa á borðmiðjunni. 

               



 Þessar gómsætu og fögru konfektdúllur eru líka tilvalin jólagjöf fyrir sælkera. Raðið medalíunum t.d. upp í röð fallegan aflangan þunnan kassa sem klæddur hefur verið með fallegum þunnum pappír, sem skal vera að sömu lengd og boxið, en það breiður að þið náið að loka vel yfir góssið í boxinu. Lokið og bindið slaufu utan um.

               

             



Eftirfarandi súkkulaðikubbar eru mjög einfaldir í undirbúningi og skemmtilega "grófir".


                            Súkkulaðikubbar með hnetum og hrísi


                      

Dökkt og ljóst eðal súkkulaði
heilar hnetur
vænt magn af hrísi (ef finnið ekki í pokum, myljið losið þá í sundur hrískökur sem fást nánast í öllum verslunum)


Bræðið súkkulaði í sitthvorum potti yfir vatnsbaði og hellið svo í tvö eða fjögur ferköntuð form sem klædd hafa verið með bökunarpappír. Hæð súkkulaðisins í forminu skal vera 2-3 cm, þannig að magnið fer eftir því hve formin sem notuð er eru stór. Dreyfið hnetum yfir aðra súkkulaðiblönduna og sjáið hverfa ofan í súkkulaðið 
 og hrísi yfir hina. Smekksatriði í hvaða tegund er notað dökkt súkkulaði og í hvora ljóst, eða hvort eru búnar til fjórar  tegundir; allt með ljósu og dökku. Þá þarf vitanlega fleiri form. Geymið í kæli þar til súkkulaðið er vel hart og skerið svo í stóra kubba.


Súkkulaðiuppskriftir á filmu

Moltensúkkulaðikaka
Súkkulaðimolar í baðvatnið


Súkkulaði í bíómyndum

Nokkrar senur úr myndinni"Chocolat"
Það er ekkert grín að vinna á konfektfæribandinu

Súkkulaði til að lesa

Súkkulaðilesning á amazon.com

Súkkulaðivefir

chocolate.org
sýndarsúkkulaði

Súkkulaðilög

Varalitur og súkkulaði
Þá þarftu súkkulaði


 

Til baka
MYNDSKEIÐ
VÖRUMERKIN OKKAR
Rana Sacla logo. m ramma Fiorucci logo m. ramma De Cecco Cirio JEnsens m. ramma Drogheria & Alimentari Lavazza logo m. ramma Celestial Seasonings Icelandic Glacial San Pellegrino Lindt logo m. ramma Cloetta logo m. ramma Ritter Sprot logo m. ramma Storck logo m. ramma Delba Rajah

©2007 • Karlsson ehf. • Powered by: Hugurax • Design by Paolo Ramazzotti